[ Skilmálar - Sjálfið ehf]

 

HiiTFiT.is/sarabarddal.is Skilmálar

Ábyrgð

Æfingarnar í HiiTFiT þjálfun eru hannaðar fyrir heilbrigða einstaklinga yfir 18 ára aldri. Ef þú glímir við sjúkdóma eða meiðsli, vinsamlegast ráðfærðu þig við lækni áður en þú framkvæmir æfingarnar. Þú framkvæmir æfingarnar á eigin ábyrgð og þarft því að þekkja þín mörk og bera fulla ábyrgð á eigin öryggi. Ef þú ferð að finna fyrir óvenjulegum óþægindum eða verkjum stoppaðu æfinguna strax og ráðfærðu þig við lækni.

Áður en þú byrjar lærðu æfingarnar vel til að lágmarka meiðslaáhættu. Ef þú ert að koma úr miklu hreyfingarleysi, glímir við of háan blóðþrýsting, hátt kólesteról, offitu, sykursýki eða aðra líkamlega kvilla, ráðfærðu þig við lækninn þinn áður en þú hefst handa. Ef hann mælir ekki með því að þú fylgir þessu æfingarkerfi, vinsamlegast fylgdu hans ráðleggingum.

Ekki lyfta þungum lóðum ein/n, óreynd/ur, slasaður/slösuð, þreytt/ur. Ekki framkvæma æfinguna án þess að læra hreyfinguna fyrst og gerðu alltaf upphitun og teygjur í lokin.

Með því að kaupa æfingaplan, eða fjarþjálfun ertu að samþykkja að frýja Sara Barðdal, Sjálfið ehf, www.hiitfit.is allri ábyrgð ef þú skyldir slasa þig á æfingu. Sjálfið ehf. ber ekki ábyrgð á neinum meiðslum sem gætu átt sér stað á meðan á æfingum stendur. 

 

Almennt 
Með því að samþykkja skilmála staðfestirðu að þú munir ekki deila efni HiiTFiT áfram með þriðja aðila og að þú virðir höfundarrétt HiiTFiT á öllu sem fer fram í HiiTFiT þjálfunarleiðum.

Sjálfið ehf , Sara Barðdal (www.hiitfit.is) er höfundur af öllu efni sem fram kemur. Höfundaréttur er áskilinn á öllu sem Sjálfið ehf gefur út og hefur að geyma. Það er aðeins ætlað til persónulegra nota og má ekki undir neinum kringumstæðum deila, birta eða dreifa til annarra án leyfis

Þegar þú kaupir vöru eða þjónustu á www.sarabarddal.is eða www.hiitfit.is ertu að samþykkja að persónuupplýsingum er deilt með Shopify, Rabyd og Kajabi í þeim tilgangi að ganga frá greiðslunni. Þegar þú skráir þig í fjarþjálfun ertu að samþykkja að vera skráð á póstlista til þess að geta fengið allar upplýsingar sendar í pósthólfið. 

Ef óskað er eftir kvittun fyrir stéttarfélag þarf að senda tölvupóst þess efnis á [email protected] með kennitölu. Ef óskað er eftir því að eyða persónuupplýsingum vinsamlegast sendu beiðni þess efnis á [email protected]

Endurgreiðsla og skilafrestur
Vegna eðlis þjónustunnar er almennt ekki boðið upp á endurgreiðslu eftir að greiðsla hefur verið innt af hendi og opnað hefur verið inn á heimasvæðið.

Eftir að námskeið hefst er ekki hægt að fá endurgreitt eða flytja námskeið yfir á annað tímabil.

Á þetta við allar leiðir HiiTFiT þjálfunar sem í boði eru.

  

Valkyrjur:

Valkyrjuraðild er eingöngu seld í áskrift.

  

Mánaðargjaldið gefur aðgang að heimasvæði og Facebook stuðningshóp, mánuð fram í tímann. Þú hefur aðeins aðgang að efni þjálfunar á meðan þú ert skráð í Valkyrjurnar.

 

Strax við skráningu færðu aðgang að efni Valkyrjanna og hefur aðgang á meðan þú ert skráð í Valkyrjuáskrift.

 

Uppsögn gildir frá degi uppsagnar og hefur þú aðgang að efni á heimasvæðinu þínu út þann mánuð sem þú greiddir.

 

Það er á þína ábyrgð að segja upp áskriftinni og vera viss um að afskráningin hafi farið í gegn. Þú segir upp áskriftinni á þínu heimasvæði og því er ekki nóg að senda tölvupóst og aðhafast svo ekki meira.

 * Tímabundið tilboð

Sömu skilmálar gilda fyrir tímabundin tilboð. Skráningin er eingöngu í áskrift sem tekur við eftir að tilboðstímabilinu lýkur. Það er á þína ábyrgð að segja upp áskriftinni á heimasvæðinu þínu áður en tímabilið rennur út ef ætlunin er ekki að halda áfram. Ekki er boðið upp á endurgreiðslu.

 

Greiðslur

Ef ekki er staðið við greiðslu mun krafa vera send til innheimtu með tilheyrandi kostnaði fyrir greiðanda.

 

Verð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

 

Skattar og gjöld
Öll verð eru án vsk og reikningar eru gefnir út án hans.

 

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.